Tiltekt í málverkum og skissum
Garðsbruni. |
Ég fór í gegnum málverka og skissusafnið mitt í gær sem var farið að fylla 3 plastkassa. Ég hef áður byrjað á þessu verkefni en bakkaði út úr því þar sem ég bara treysti mér ekki til að henda neinu. Í gær harkaði ég hinsvegar af mér og lét vaða í þetta. Henti á endanum fullum ruslapoka og tók frá heilan stóran plastkassa af myndum sem má mála á bakhliðina á. Ég þarf væntanlega ekki að kaupa mér vatnslitapappír á næstunni.
En það var gott að ég dreif í þessu. Þetta hafði jákvæð áhrif á sálina og kynti aðeins undir sköpunareldinum. Jók aðeins sjálfstraustið. Margt af þessu var bara alveg ágætt. Sérstaklega þykir mér vænt um ýmsar skissur sem tengjast daglegu lífi. Myndir úr Birkihrauni, skissur af börnunum og Guðrúnu. Þetta vekur upp góðar minningar.
Svo fann ég líka þessa litlu mynd sem ég set hér inn. Man ekkert hvar ég var þegar ég málaði þetta en man óljóst eftir að vera að leika mér eitthvað með mjög loose landslag. Ég eiginlega veit ekki afhverju ég setti hana til hliðar því mér finnst hún helvíti góð. Þegar ég tók hana upp í gær vissi ég um leið að hún ætti að fara í ramma. Ég ætla að kalla hana Garðsbruna.
Ummæli