Mánudagur í Reykjavík City

Málverk eftir Georg Guðna.

Ég flaug suður í morgun og verð að vinna hér í capital city næstu 3 daga áður en ég fer í gæsaveiðina. Gisting á Grand Hotel, út að borða og fara í ræktina. Gott að breyta aðeins um umhverfi og gaman að hitta fólkið hér á Suðurlandsbrautinni.

Upp á síðkastið hef ég verið að skrifa niður einhvern þungan, dramatískan og ljóðrænan texta sem ég þori ekki að birta hérna á síðunni. Allavega ekki strax. Veit ekki hvort það ætti að kalla þetta ljóð eða prósa- enda skiptir það engu máli. Þetta tengist að ég held einhverri vanlíðan/eirðarleysi sem hefur kraumað innra með mér en vellur núna út í formi texta. Það hlýtur að vera jákvætt ef maður nær að finna einhvern farveg fyrir það.

Ég hef ekki átt auðvelt með að koma frá mér neinu efni upp á síðkastið. Líður bara eins og ég sé fullur af einhverju materíali, en það kemst ekki út. Kollurinn á mér er eins og þeytivinda þar sem allskyns hugmyndir og óflokkað efni hringsnúast endalaust. Mér finnst ég þurfa að öskra á heiminn, en bara veit ekki hvað.

Í gær horfði ég á heimildarmyndina Sjóndeildarhringur sem fjallar um myndlistarmanninn Georg Guðna, sem því miður féll frá aðeins fimmtugur. Ég varð gjörsamlega dolfallinn yfir verkunum og sýn hans á myndlistina. Ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki mikið um hann og hafði ekki gert mér grein fyrir því hvað hann var stórt nafn. Þetta veitti mér innblástur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap