Bestu tónleikar sem ég hef farið á

Nick Cave
Nú er frábær helgi á enda sem ég eyddi í Reykjavík. Ég og Þórður skelltum okkur suður til að sjá Nick Cave spila og spjalla við áhorfendur í Eldborgarsal Hörpu. Ég vissi ekki alveg hverju ég ætti von á en þetta fór langt fram úr mínum björtustu vonum. Hann var einn við flygilinn og söngurinn og spilið voru gjörsamlega út úr þessum heimi. Spjallið við áhorfendur (þar sem hann tók spurningar úr sal) var að mestu ánægjulegt en hann hafði alltaf eitthvað að gefa af sér og gat komið með góð svör við vondum spurningum. Svo er nærvera hans og almennur töffaraskapur engu lík.

Eftir tónleikana skelltum við okkur í bæinn og þvældumst milli pöbba fram á nótt. Ég hef ekki gert þetta í mörg ár en skemmti mér óvenju vel.

Það er barnalaus vika hjá mér þessa vikuna en ég þarf að hlaupa undir bagga með Guðrúnu og næ í þau í skólann 2 daga og þau gista hjá mér eina nótt. Ég fer síðan suður á föstudagsmorgun á fund og er að bræða það með mér hvort ég verði þar næstu helgi. Taki jafnvel racerinn með og taki hjóla-session. Ég er á báðum áttum en hef s.s. góðan tíma til að ákveða þetta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap