Gúrú

Sadhguru Jaggi Vasudev

Sálarástandið er algerlega þitt eigið drama. Kannski ekki alveg skotheld þýðing:

Your psychological progress is entirely your drama

Svo segir Sadhguru, indverskur yogi sem ég horfði stundum á á jútjúb þegar ég var að fara í gegnum erfiðistu tímana í kringum skilnaðinn.

Ég hef hinsvegar lítið legið yfir sjálfshjálpardóti upp á síðkastið og meira verið að reyna að beita mínum eigin aðferðum við að ná meiri sátt við lífið. Eins og fram hefur komið hér á blogginu er ég t.d. farinn að hugleiða aftur, og nú er að verða komin vika hjá mér af hugleiðslu. Það gera 56 mínútur í heildina. Næstum klukkutími af því sitja einn með sjálfum mér og reyna að fá frí frá hugsunum og skoðunum (það er mjög erfitt að þurfa alltaf að hafa skoðanir á öllu).

Eins og ég kom líka að í fyrri póstum, þá held ég að þetta hafi haft góð áhrif. Mig langaði meira að segja að mála í gærkvöldi, næstum því allavega. En það er kannski ekki bara hugleiðslan heldur líka stutt myndband sem ég rakst á með Sadhguru sem heitir "What happens when you think too much?" Þetta núvitundardót er nú reyndar voðalega mikið það sama en mér finnst þessi gaur oft orða hlutina betur heldur en Eckhart Tolle.

Hann er að tala um að tilfinningar okkar og hugsanir eru bara afurð af því sem við höfum skynjað. Sitji 100 manns í herbergi, má segja að hver og einn sitji lokaður í sínu sálfræðilega rúmi og eigi sitt prívat sálfræðilega drama. Þitt drama er ekki til fyrir öðrum. Þegar maður nær að skoða hugsanir sínar meira utanfrá og sjá þær fyrir það sem þær eru, nær maður progress.

Dæmi; ég er heima að laga til og rekst á einhvern hlut sem tengist mér og Guðrúnu. Hann kveikir strax upp andlega, og jafnvel líkamlega vanlíðan, t.d. söknuð eða reiði. Stutt er í að ég fari þá í huganum að dæma og hugsa allskonar scenario, jafnvel taki einhver rifrildi. En ef ég skoða þessa hugsun/tilfinningu sem spratt upp í því ljósi að hún sé bara einhver einagruð afurð sprottin úr mínu hugarfylgsni, þá hefur hún ekki nærri jafn mikil áhrif á mig. Það að mér líði svona eða hinsegin þarf ekki endilega að þýða neitt. Þetta er bara skoðun, upplifun. Ég get því horft á þetta í huganum og get látið þetta svo bara svífa í burtu og snúið mér að einhverju öðru.

Höfum það alltaf í huga að við sjáum heiminn út frá okkar þrönga sjónarhorni og það þarf ekki að þýða að það sé betra eða réttara en eitthvað annað. Mér hefur allavega fundist þetta hjálplegt upp á síðkastið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap