Nýtt ár - Ný markmið - Ný ævintýri

Salsa Fargo Apex 1

Í fyrra skrifaði ég hér á bloggið að mig dreymdi um að kaupa mér ferðahjól og fara til Svíþjóðar. Hjóla frá Lundi til Västerås. Ég skrifaði líka að mig langaði að hjóla frá Akureyri til Mývatnssveitar, fara með Brynleifi í 3 daga hjólreiðaferð, hjóla til Siglufjarðar og fara líka fram að Bakkaseli og gista í tjaldi eina nótt. Kannski bjóst ég aldrei við að gera þetta en nú hefur allt ræst nema ég á eftir að fara í Bakkasel og til Siglufjarðar.

Veðrið hér á norðurlandi hefur verið frekar leiðinlegt upp á síðkastið og það væri auðvelt að sleppa bara þessum tveimur ferðum. Ég var reyndar eiginlega búinn að gleyma þeim en fór svo að grúska og dustaði rykið af sumarplaninu. Þar sem ég er búinn að vera eitthvað hálf eirðarlaus og fundist leiðinlegt að hafa ekkert spennandi fyrir stafni fyrr en næsta sumar, þá er ég að hugsa um að láta bara verða af þessu. Stefni því að því að hjóla í Bakkasel 23.- 25. ágúst og hlýt að finna tíma í að hjóla til Siglufjarðar áður en fer að snjóa.

En ég er líka að spá í að setja mér metnaðarfull markmið fyrir næsta sumar. Hjólið sem er efst á síðunni tengist einu þeirra. Ég er að spá í að fara til Svíþjóðar með börnin í eina viku og láta Guðrúnu taka við þeim í Danmörku. Ég gæti tekið racerinn með mér og hjólað svo í eina viku eftir að börnin eru farin til mömmu sinnar (ekki nákvæmlega ákveðinn í hvert eða hvernig). Síðan langar mig að fara til Íslands og taka 2 vikna ferð á hálendinu á kvikindinu sem er á myndinni. Engin leið ákveðin ennþá, en gaman gæti verið að fara úr Eyjafirði og suður yfir hálendið. Þolli kæmi sennilega með. Annað sem mig langar að gera:


  1. Keppa í the Rift (200 km)
  2. Hjóla Akureyri/Bárðadalur/Suðurárbotnar/Vagnbrekka
  3. Hjólaferð með Brynleifi og kannski Dagbjörtu
Það gæti orðið challenge að koma saman þessu plani en örugglega alveg hægt. Í næst pósti ætla ég að skrifa um hvernig ég er að spá í að skipuleggja líf mitt í kringum svona ævintýri.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap