Húsnæðismál, hugleiðsla og keto
Hugleiðsla; ég hoppa úr einu í annað. Ég er nú í nokkra daga búinn að hugleiða áður en ég leggst á koddann. Ég tek þá 8 mínútur, ýmist með hugleiðslutónlist eða hef bara þögnina. Svei mér þá ef þetta er ekki að skila einhverju. Mér líður allavega betur andlega og þegar ég sleppti einu kvöldi var ég hálf ómögulegur daginn eftir, sama hvort það var bara tilviljun.
Megin áherlsan hjá mér er að reyna að vera ekki þvingaður og nota ekki "afl" til að hugsa ekki. Ef það koma hugsanir þá bara leyfi ég þeim að koma og horfi svo á eftir þeim svífa í burtu. Í fyrradag náði ég svo ca. 2 mínútum þar sem hugurinn var alveg blanco og ég hálpartinn sveif um í einhverri vellíðan. Fékk meira að segja gæsahúð. Það var gott.
Mataræðið hefur verið brilliant síðustu daga. Ég byrjaði eiginlega óvart á keto og ef frá eru talin 3 gróf hrökkbrauð sem ég át í gönguferðinni á laugardaginn, þá hef ég verið gallharður. Steig á vigtina í morgun og er kominn undir 70 kg. sem er kannski eðlilegt þar sem ég er að hjóla mikið.
Þar sem ég er með börnin þessa viku verð ég helst að reyna að taka æfingar í hádeginu. Fór áðan og tók æfingu dagsins með smá breytingum svo það hentaði öxlinni. Það var gott að taka aftur venjulega æfing á fullu blasti. Hugsa að ég reyni að ná allavega 2 í viðbót í þessari viku en svo er ég að fara á Nick Cave til Reykjavíkur um helgina.
Ummæli