Ferð næsta sumar
Trek 1120 |
Ég held áfram að dunda mér við að skipuleggja hálendisferð næsta sumar. Mér finnst gott að hafa eitthvað til að hlakka til og gaman að græja sig upp, spá og spökulera. Ég ætlaði að kaupa mér "bikepacking" hjól í gegnum Markið og var búinn að birta mynd af því hér í fyrra bloggi (Salsa Fargo). En nú hef ég fengið það staðfest hjá Markinu að þeir hafi gefist upp á að díla við þennan framleiðanda og sögðu bara "sorry, við getum ekki reddað þér hjóli".
Ég er því aftur farinn að skoða að fá mér hjól í gegnum Örninn, þó ég hafi lofað mér því að versla ekki þar aftur. Hjólið sem ég er að spá í heitir Trek 1120 og kemur á 29" dekkjum (plus tires) og með tilbúnar grindur til að strappa farangri á. Það er nefnilega ekki hægt að nota sömu töskur og ég nota á ferðahjólið, því þær myndu hristast af í öllum hamaganginum. Kosturinn við þetta hjól umfram margt annað sem ég hef skoðað, er að ég get látið nægja að kaupa nokkra þurrpoka sem ég strappa við hjólið og svo kannski eina netta tösku á slánna, fyrir síma, batterí og minna dót. Síðan raðar maður bara farangrinum í þurrpokana og strappar á með ólum.
Sjálfsagt þarf maður að reikna sér annsi ríflegan tíma til að hjóla yfir hálendið því það þarf lítið útaf að bregða til að maður tefjist. Vatnavextir og veður gætu sérstaklega sett strik í reikninginn. Ég er kannski of bjartsýnn en ég er að plotta upp 2 vikna leið úr Eyjafirði, inn á Sprengisandsleið, síðan yfir á Kjalveg, í Guðlaugstungur og svo skáa sig niður þaðan inn á friðlandið að Fjallabaki. Djöfull held ég að þetta gæti verið gaman og nú er bara að hitta einhvern reyndan fjallahund til að fara yfir ár og skála. Það væri nefnilega mjög erfitt að gera þetta 100% self supportive túr og gott að geta haft tilbúnar vistar á einhverjum 2-3 stöðum á hálendinu.
Ummæli