Minnispunktar

Á góðri stund "in the middle of nowhere" að brasa pottkaffi.

Þessi hjólaferð sem ég var í hverfur ekki svo glatt úr huga manns. Maður er búinn að vera að reyna að setja sig inn í ýmis mál í vinnunni en hugurinn fer yfirleitt á þvæling aftur til Svíþjóðar, þar sem maður hjólar í gegnum heiðgula akra og framhjá spegilsléttum vötnum sem eru umvafin skógi í sól og blíðu. Já svo dregur hugurinn mann líka í að plana næsta ævintýri. Ég er búinn að vera að spá í hvort ég taki mér ekki 6 vikna sumarfrí næst og verði 2 vikur með börnin í útlöndum og taki svo 4 vikna hjólaferð ef ég næ að koma því við. Frakkland, Andorra og Spánn hljóma vel.

Annars lifir þessi ferð fersk í huga manns eins og fram hefur komið og gaman að fara yfir það hvað maður lærði og hvað betur hefði mátt fara. Í ferðinni skrifaði ég niður lista hverju ég gæti bætt við fyrir næstu ferð og það er nú s.s. ekki mikið. Það helsta er:

  • Teygjur (til að loka kaffipokum og matarpakkningum)
  • Litla fislétta samanbrjótanlega veiðistólinn minn (það er leiðinlegt að sitja á jörðinni)
  • Vatnshelda vettlinga
  • Neoprene skóhlífar þegar rignir (þá er nóg að vera í opnum skóm)
  • Útivstar- eða íþróttabuxur
  • Sápustykki
  • Kodda (t.d. uppblásanlegan)
  • Craft hlaupa/gönguskíðabuxur fyrir rigningarveður og kulda (allavega í Skandinavíuferðum)

Það er gott að skrifa þetta niður jafnóðum svo maður gleymi þessu ekki. Fyndið hvað einhver smáatriði eins og teygjur geta skipt miklu máli í svona ferð, svona upp á þægindin. Annað smáatriði sem ég tók með fyrir tilviljun var bleyjutuska sem ég notaði sem viskustykki. Það mun ég taka með í allar ferðir hér á eftir.

Annars er ég líka búinn að vera að velta fyrir mér hvað ég myndi segja ef ég væri beðinn að nefna 5 hluti sem væru algert möst fyrir svona ferð (tel hjól, síma og annað sem er sjálfsagt ekki með). Það sem ég lærði á þessari ferð er:


  1. Tjald. Ekki rétti staðurinn til að spara peninga. Verið með gott tjald sem er fljótlegt að tjalda, er með fortjald með plássi fyrir farangur og þolir alvöru rigningu. Það er kostur ef hægt er að opna hliðina og leggjast beint inn.
  2. Vatnsheldur jakki. Sennilega heldur ekki staður til að spara pening
  3. Alvöru hjólabuxur með púða á rassinum
  4. Hleðslubanki. Hélt þetta væri bara aukin þægindi en þetta er möst.
  5. Vatnsheldar hjólatöskur. Ef töskurnar leka, þá er restin af dótinu blaut.
Þetta er nú það helsta sem ég man eftir fljótt á litið en annað sem kom mér á óvart er hvað svona ferð er mikið álag á hjólið sjálft og þá sérstaklega drifbúnaðinn og skiftingarnar. Ætla fljótlega að skrifa nokkur orð um það og útskýra afhverju ég er að verða meira og meira spenntur fyrir Pinion gírbúnaði.

Góða helgi,

Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap