Sumarfrí

Sólin nær að skína á húsið hjá okkur til klukkan 23.00 þessa dagana. Svo hverfur hún aðeins niður fyrir Möðruvallarfjöllin áður en hún fer að rísa á ný.

Nú á víst að heita svo að maður sé kominn í sumarfrí. Það er nú reyndar svo að maður er með eitthvað lítið planað og óvissan með húsnæðismálin er ekki að auðvelda manni bara að svífa út í buskann áhyggjulaus. Börnin finna reyndar ekki fyrir neinu. Þau eru bara sátt á meðan þau fá ís og geta hitt einhverja vini. Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað brjálað plan. Brynleifur er að biðja um að fá að fara í golfskóla í næstu viku og aldrei að vita nema maður láti það eftir honum.

Við ætlum að skella okkur í Mývatssveitina á eftir og verðum eflaust þar næstu daga. Finnum upp á einhverju sniðugu, hittum vini og förum í sund. Svo er ferðahjólið mitt þar, ég þarf að stilla gírana og venja rassinn á mér betur við hnakkinn.

Ég er búinn að vera að lesa mig til um þennan Brooks C17 sem ég keypti og menn hafa mjög misjafnar skoðanir á honum. Mér finnst nú samt eins og meirihlutinn sé ánægður, en það er þá gjarnan eftir mjög mikið fiff við að stilla hann rétt af. Ég verð að prufa að hnika honum eitthvað til og jafnvel lækka aðeins sætið. Í versta falli verð ég að skipta honum út fyrir upprunalega hnakkinn fyrir ferðalagið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap