Skotlandsferð Bjarna hins helga lokið
Það var fallegur morgun í Perth þegar ég lagði upp til Glasgow í morgunsárið. |
Jæja þá er en einni frægðarförinni til Skotlands lokið og það má segja að hún hafi verið til fjár. Ég var að hitta í fyrsta skipti fólkið sem starfar í European Goose Management Platform (EGMP) sem er batterí sem starfar undir Agreement on the Conservation of African-Eurasian Migratory Waterbirds (AEWA) sem Íslendingar eru aðilar að. Ég var þarna með einum manni úr Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og einum frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Ég var búinn að undirbúa þetta vel og það fór svo að við náðum samkomulagi við UK um frekara samstarf þegar kemur að stýringu gæsastofna. Nú eru fundir framundan á Íslandi í september og margt fleira spennandi að gerast. Gaman þegar vel gengur.
Einhverra hluta vegna enda ég aftur og aftur í Skotlandi. Sama hvort það sé skemmtiferð með vinnufélögum, ferð í brúðkaup eða skírn, vinnuferð eins og þessi sem ég var í, eða eitthvað annað, þá kem ég hingað aftur og aftur. Ég held ég hafi örugglega komið hingað átta sinnum, þar af 5 sinnum fyrir 3 ólík fyrirtæki eða stofnanir. En ég er líka mjög sáttur við það, því mér finnst Skotland laveg frábært land. Skemmtileg menning, falleg náttúra og fólkið er yfirleitt alveg hrikalega skemmtilegt.
Þessi ferð var engin undantekning. Ég gisti á frábæru B&B, fékk alveg geggjaðan morgunmat og komst út að borða á frábæra staði. Borða fyrsta kvöldið hjá International Cuisine of the Year - Chef 2018, á stað sem heitir Tabla, alveg hrikalega góðan og spæsi indverskan mat. Í gærkvöldi át ég svo á klassískum skoskum veitingastað sem var alveg framúrskarandi líka. Reykt ýsa, lambalifur og súkkulaði mús.
Ég ætlaði að hlaupa í ferðinni en það endaði nú öðruvísi. Fann þetta fína Crossfit box og tók 2 góðar æfingar með degi í hvíld á milli. Það jafnar væntanlega eitthvað út ýmisslegt sóðalegt sem maður át í ferðinni. Síðasta vika í æfingum hjá mér endaði því svona:
Fimmtudagur: Crossfit
Föstudagur: hjóla 90 km (Mývó).
Laugardagur: Hjóla 16 km
Sunnudagur: Hjólaði 30 á sæmilegu efforti
Mánudagur: Smá axlir og armbeygjur á B&B
Þriðjudagur: Crossfit
Miðvikudagur: Hvíld
Fimmtudagur: Crossfit.
Fínt að henda þessu svona upp til að átta sig á því hvað maður hefur verið að gera. Maður þarf ekki að láta vinnuferðir eyðileggja fyrir sér æfingarnar. Nú verður samt sennilega hvíld á morgun þar sem ég þarf að ná í Dagbjörtu á leikskólann kl. 14.00 og það verður líka svolítið erfitt að fitta hjólreiðum inn í planið þegar ég er með börnin. Ég verð samt að gera það áður en ég fer út til að venjast hjólinu. Kemur í ljós hvernig það tekst til.
Ummæli