Góð helgi, smá stress en skýrist allt
Fór með börnin í sveitina um helgina og við áttum notalega stund eins og lög gera ráð fyrir. Veðrið var nú reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir í upphafi, en svo brast á með blíðu í gær (annan í Hvítasunnu), og þá skelltum við okkur í lónið. Það var ekkert að gera þar þrátt fyrir algera steik. Þetta var dásamlegt.
Daginn áður slapp veðrið s.s. fyrir horn og þá nýtti ég tækifærið og hjólaði hringinn þar sem ég var nú með hjólið með mér. Var 1:22 mínútur að hjóla hringinn þrátt fyrir að hafa verið með blástur í fangið meira og minna að Garðsgrundunum, þannig ég held að það sé bara ágætt.
Annars er maður búinn að æfa þokkalega vel og maður sér og finnur alltaf smá mun á sér með tímanum. Segi það en og aftur; maður er að komast að því betur og betur hvað þetta er mikið langhlaup. Og maturinn.... tja, ét nú í heildina sæmilega hollt en hef ekki nennt að vera á Ketó. Ég er þó nokkuð harður á 16:8 föstu og finnst það mjög gott.
Nú eru börnin farin til Guðrúnar og ég verð því einn það sem eftir er vikunnar. Á sunnudaginn flýg ég svo til Reykjavíkur og út til Skotlands á þjóðhátíðardaginn. Ég er að fara á fundi um evrópsku gæsastofnana og reikna passlega með að vera aðal stjarnan á fundinum. Þessu tengdist ýmislegt stress en nú nenni ég ekki að útskýra það.
Já ég veit eiginlega ekki hvað ég er að tuða hérna svona allmennt þannig ég er bara hættur þessu.

Ummæli