Hjólaferðin - uppfærður listi
Ég er búinn að vera að renna yfir listann fyrir hjólaferðina og sýnist í fljótu bragði að það verði ekki mikil fjárútlát í viðbót. En ég er líka að ganga annsi langt í að fá lánað og reyna að komast upp með að hafa þetta eins ódýrt og hægt er. Svona lítur þetta út ca. núna:
Hjól og aukahlutir: Þarf að kaupa standara, bretti, auka skrúfur fyrir bretti og grindur, hjólalás, flöskuhaldara, vatnsflöskur, slöngu og bætur. Síðan þarf ég lítinn skiptilykil. Sýnist að ég muni bara kaupa mest af þessu beint frá Þýskalandi.
Útilegudótið: Ég get fengið tjald og svefnpoka hjá Þórði. Ég er að taka smá áhættu með tjaldið en verð bara að vona að það leki ekki. Slíkt gæti eyðilagt ferðalagið. Eldunardót, prímus og annað get ég líka fengið lánað hjá Þórði. En mig vantar græjur til að hella uppá. Í því sambandi hef ég verið að skoða aero-press græju.
Föt og skór: Ég get að sjálfsögðu alveg komist hjá því að kaupa mér föt og skó og bara notað það sem ég á. Það hefði reyndar verið gaman að bæta við góðum og þægilegum útivistarfötum en ætli ég láti það ekki eiga sig. Ég mun hafa með mér 12 ára gamla Fjallraven skel og það er bara að vona að hún haldi vatni. Hugsa að ég sleppi regnbuxum og treysti á að það verði hlýtt í veðri.
Annað: Vantar létt og góð sólgleraugu, útileguhandklæði sem þornar fljótt og hleðslubatterí.
Nú þarf maður bara að fara að safna þessu saman og hafa þetta tilbúið. Það væri ekki vitlaust að taka einhverjar prufureisur í júní til að æfa sig.

Ummæli