Fögur er hlíðin

Er staddur í Fljótshlíðinni í vinnuferð í góðu yfirlæti. Það hefur verið nokkuð blautt á köflum og vindasamt en við liggjum hvort sem er að mestu inni við og reynum að vinna í einhverjum verkefnum. Húllum hæ í gærkvöldi, góður matur beint frá býli, afgreiðslufólk bæði af erlendu og innlendu kyni trakteraði okkur af mikilli skyldurækni og auðmýkt. Fór í hlauptúr fyrir kvöldmatinn í gær um slétturnar hér fyrir neðan sem virðast óendanlegar og vel til þess fallnar að lenda í hamfaraflóðum. Fuglalíf í blóma, máríuerla, gæsir, óðinshanar og skoskur smalahundur vel við aldur, nokkuð stór en stirður.

Ég var fenginn til þess að vera bílstjóri í ferðinni og gaman að fá rútubílstjóra fílinginn. Verst að ég gleymdi að taka með brúna sandala, bláa skyrtu og pakka af Winston long. En jæja ég geri það bara næst. Nú er víst kominn matur og svo þurfum við að drífa okkur til Reykjavíkur á fundi og eitthvað meira. Flýg heim í kvöld og er að spá í að hjóla austur í Mývó næstu nótt eða einhverntíman um helgina.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap