Æfingadagbók

Þar sem ég fór suður í þessa vinnuferð var ég búinn að reikna með því að það dyttu út tveir til þrír dagar af æfingum. Annað kom nú á daginn. Á mánudag og þriðjudag lyfti ég á Grand Hótel, á miðvikudaginn hljóp ég í Fljótshlíðinni og þegar ég kom heim á fimmtudagskvöldið hjólaði ég 35 km. á frekar miklu efforti. Núna er ég að spá í að skella mér í einn crossfit tíma þó ég sé svolítið ryðgaður í löppunum eftir hlaupið og hjólið. Ég reyni bara að taka því frekar rólega.

Síðan þarf ég að klára að mála hérna fyrir utan í dag. Helst að ná 2 umferðum og vona að sólin fari að ná að brjótast í gegnum skýin. Í kvöld er Euro og ég hefði verið til í að komast heim í Brekku en hugsa að ég verði bara hér.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap