Æfingadagbók II
Það er alger dauði að hjóla upp í Hlíðarfjall. Þó ég sé ekki búinn að vera að hjóla neitt náði ég PB 30 mín á nýja fáknum. |
Búinn að vera með krakkana þessa viku og þá næ ég ekki að hjóla mikið. En þrátt fyrir það æfði ég ágætlega í vikunni.
Sunnudagur: Hjólaði ég 11 km og tók Crossfit æfingu sem var killer
Mánudagur: Crossfit í hádeginu
Miðvikudagur: Crossfitæfing í hádeginu
Fimmtudagur: Upphitun og hjólaði svo upp í skíðaskála (PB)
Föstudagur: Crossfit í hádeginu
Síðan reikna ég með því að drösla börnunum með og taka Crossfit æfingu á sunnudagsmorguninn. Þannig maður er fljótur að sjá það þegar maður skrifar þetta svona niður í hvað maður er að setja mesta powerið. En líkaminn er ekki að kvarta og ég held að ég hafi verið að gera þetta nokkuð skynsamlega. Í næstu viku þegar ég er ekki með börnin reikna ég með að snúa þessu aðeins við og hjóla aðeins meira og taka færri Crossfit æfingar. Samt er svo magnað í þessu hvað Crossfit æfingarnar halda manni þó í góðu formi, því hjólaformið er ekki svo slæmt.
Að lokum, ég þarf að fara að snúa við blaðinu í mataræðinu aftur. Þessi vika hefur verið í rugli, afmælisveisla hjá mömmu, croissant í dag, ástarpungar og kökur á vorhátíð í leikskólanum og pizza í kvöld. Já og pita og franskar í gær. Þetta gengur ekki. Salat og egg á morgun.
Ummæli