Bloggleti

Prufur fyrir ný póstkort. Ætla að velja mynd 1 og 3 (tvær efstu).

Maður hefur verið eitthvað hálf lélegur að blogga upp á síðkastið og ég veit eiginlega ekki afhverju. Kannski að hluta til vegna niðursveiflu sem ég fór í og varði lengur en ég bjóst við. En ég held að ég sé nú alveg að rífa mig upp úr því.

Í vikunni tók ég smá skurk í póstkortamálum og ætla líka að fara með 2 myndir í innrömmun. Þetta er það næsta sem ég hef komist því að gera eitthvað skapandi lengi. En þetta kveikti líka aðeins í mér og ég varð spenntur yfir þessu.

Í gær (miðvikudag) lagði ég inn nýtt tilboð í Tjarnarlundinn og bíð bara og vona að ég fái jákvæðar fréttir fljótlega frá fasteignasölunni varðandi Dalsgerðið. Ef aðilinn sem er með tilboð í okkar eign selur sitt fljótlega ætti þetta allt að smella. Ef þetta gengur eins og í sögu næ ég að flytja áður en ég fer út 8. júlí.

Æfingar vikunnar..... hmmmm leyfið mér að hugsa....

Sunnudagur: Crossfit
Mánudagur: Hjólaði 27,5 km.
Þriðjudagur: Hvíld
Miðvikudagur: Crossfit
Fimmtudagur: Hjólaði 40 km.

Þannig að maður er allavega að hreyfa sig. Ég var reyndar þreyttur í fótunum í dag þegar ég var að hjóla enda tók ég hnébeygju í gær svo ég hugsa að ég hvíli á morgun eða fari bara í Crossfit ef það verður ekki krefjandi lappaæfing.

Já og svona rétt í lokin, þá get ég sagt frá því að lestrarátakið mitt er komið út um þúfur í augnablikinu. Ég datt á bólakaf í Soprano's seríu 1 og er annsi hræddur um að ég eigi ekki eftir að ná að hemja mig þegar hún er búin. Djöfull eru þetta helvíti góðir þættir og mikið andskoti eldast þeir vel.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap