Barnalaus, villuráfandi í Reykjavík.
Í kaffi hjá Þórunni. |
Fór til Reykjavíkur á föstudagsmorgun til að sitja ársfund Umhverfisstofnunar og fara á árshátíð. Fundurinn var því miður frekar bitlaus og ég er ekki mikið fyrir svona árshátíðarstand. Árshátíðir eru að verða eins og brúðkaup, uppfullar af einhverjum klisjum eins og instagram-fokki og leiðinlegum leikjum. Síðan drekka sig allir fulla og lítið hægt að ræða við nokkurn mann af einhverju viti- sérstaklega eftir að hljómsveitin byrjar. En maturinn var geggjaður með stóru G-i!! Húrra fyrir Grand Hótel.
En gærdagurinn (laugardagur) var mjög fínn því pabbi var á landinu og við náðum góðum tíma saman. Þvældumst milli kaffiboða, skoðuðum strandveiðibát, tókum bryggjurölt og átum á Granda mathöll. Enduðum síðan í kaffi hjá Þórunni Ingu og Ara og skoðuðum nýjustu frænkuna okkar.
Eftir að ég kom norður í gær ákvað ég að hjóla aðeins afmér 2ja daga ofát. Hjólaði litla Eyjafarðarhringinn (34 km) í norðan nepju. Var eitthvað hálf druslulegur en þar sem ég var að hlusta á podcast um sjóslysin í Ísafjarðardjúpi í febrúar 68 gat ég nú eiginlega ekki mikið verið að vorkenna mér.
Í morgun tók ég svo crossfit æfingu sem m.a. innhélt styrk þar sem maður tók fimm sinnum 3 endurtekningar í bekk. Ég tók 80 kg í síðasta settinu og hef nú bara held ég aldrei lyft 80 í bekk áður. Ég hlýt því eiginlega að vera farinn að nálgast 90 í Max. Maður kannski á eftir að taka 100 einhvern daginn. Það er svo sem ekki slæmt fyrir 70 kg stubb.
Nú er ég í sófaklámi, nýbúinn að éta og er að horfa á Reykjavík Crossfit games. Næs dagur.
Ummæli