1. maí hlaup UFA
Strava screen shot af 1. maí hlaupinu. |
Ákvað í gær að skrá mig í 1. maí hlaup UFA. Var búið að langa lengi til að tékka hvar ég stæði og hvort að crossfit-ið væri nóg til að halda manni í einhverju hlaupaformi. Ég hafði ekki hlaupið/skokkað síðan á Gamlársdag þannig ég renndi blint í sjóinn með þetta.
Taktíkin var að reyna að halda 5:00/km pace í 2,5 km og svo gefa í. Þetta voru reyndar kannski taktísk mistök því seinni helmingurinn af brautinni var allur niður í móti. Þá rúlla allir frekar létt og erfitt að hlaupa fólk uppi. Þegar kominn var tími til að gefa í var ekki mikið á tanknum og þegar rúmur kílómetri var eftir var ég kominn með krampa í vinstri kálfann en lét mig hafa það. Á endasprettinum tók ég svo framúr einum gaur sem ég var búinn að hanga í hælunum á lengi og var alveg að ná fram úr einni stelpu sem varð vör við mig og náði að gefa í og merja mig með einhverjum sekúndubrotum. Það var gaman.
Ég endaði á að vera 23:44 (flögutími) sem gerir 4:41/km pace sem er held ég mjög gott miðað við að vera ekki að hlaupa neitt þessa dagana. Nú ligg ég í sófanum, ét belgískt konfekt og slappa af. Það verður svo að koma í ljós á morgun hvort þetta var gáfulegt. Ég er nefnilega helvíti stirður í kálfanum. En það góða er að ég fann ekkert til í hnjánum.
Ummæli