Komin á Eyrina

Jæja þá erum við börnin komin heim eftir fína helgi í Mývó. Það bar nú s.s. ekkert til tíðinda og við gerðum eiginlega bara ekki neitt nema slappa af. Þó leyfði ég Brynleifi að fara og leika við strákana á Heiði í gær og var það mikið fjör eins og búast mátti við. 

Vikan er frekar óráðin hjá mér. Ég hjálpa kannski Guðrúnu eitthvað með börnin á morgun og hinn ef hún verður upptekin við að koma sér fyrir í nýju íbúðinni sinni. Annars ætla ég bara að reyna að njóta þess að hafa ekkert nema um sjálfan mig að hugsa. Það þýðir yfirleitt bara ræktin, góður matur, bóklestur og kannski sund. Svona hefur maður nú breyst með árunum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap