Uppleið
Held að það megi nú segja að hlutirnir hafi heldur verið á uppleið hjá manni núna, svona andlega séð. Ég væri reyndar að ljúga ef ég segðist ekki vera gramur, en það er eitthvað sem ég verð að finna farveg fyrir. Mér finnst ég eigi eitt og annað ósagt, en held ég sé farinn að átta mig á því að það hafi í raun engan tilgang.
En allavega, nú stendur maður í allskonar veseni við að splitta upp búinu, selja húsið og reyna að finna einhverjar lausnir í húsnæðismálum. Þetta eru ekki skemmtileg verkefni, en þetta eru verkefni sem þarf að leysa.
Ég hlakka rosalega til þegar þessu verður lokið og ég legg höfuðið í fyrsta skipti á koddann í nýrri íbúð. Það verða ákveðin tímamót, einhverskonar ráslína og nýtt upphaf.
En til að enda þetta á jákvæðum nótum: Ég er heilsuhraustur og í góðu formi. Ég á heilbrigð börn.... þarf ég eitthvað meira?

Ummæli