Mývatssveitin er æði kvað skáldið

Nú er ég búinn að vera í Mývatnssveit í tvo daga að vinna og það hefur ekki lagst neitt of vel í mig. Vinnuaðstaða Umhverfisstofnunar er í Mývatnsstofu (gamla vinnustað Guðrúnar) og það hellast yfir mann einhverjar minningar sem erfitt er að díla við. Ég hef ekki verið mikið í sveitinni síðan við bjuggum hér öll saman sem fjölskylda og því er einfaldlega bara frekar sárt að vera hérna.

Ég var að spá í að reyna að skrifa eitthvað hresst blogg og reyna að láta líta út fyrir að ég sé í góðu tjútti, en svo er ekki. Mér er búið að líða vægast sagt ömurlega í dag og þetta hefur truflað mig við vinnuna. Þannig er það nú bara. Þarf manni nokkuð hvort sem er alltaf að líða vel og vera hress?

Jákvæðni #10 Mér dettur ekkert annað í hug en að hæla mér fyrir að hafa farið í ræktina 2 daga í röð.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap