Hjólaferðin
Nú er ég aðeins farinn að skoða flug fyrir hugsanlega hjólaferð og mér til mikillar ánægju sé ég að ég get pantað flug með Icelandair beint frá Akureyri til Kaupmannahafnar á sama miða. Þá fer ég með Air Iceland Connect til Kelfavíkur og svo áfram- sem er geggjað. Ekkert að spá í að koma mér suður, ekkert rútukjaftaði á BSÍ eða gisting í Reykjavík. Vonandi verður Stokkhólmur - Akureyri ekkert vesen.
Ég er búinn að vera að skoða hvernig er best að pakka hjólinu og ferðabúnaðnum, og þó það sé smá bras, þá ætti það ekki að taka neinn brjálaðan tíma. Maður rífur stýrið af, pedalana og dekkin. Síðan fær maður pappakassa hjá einhverri hjólreiðaverslun og pakkar hjólinu eins og það var þegar maður fékk það í hendurnar. Síðan þarf ég pappakassa fyrir hjólatöskurnar, tjaldið, eldunardótið og allt það. Síðan er maður bara með bakpoka í handfarangri.
Ég er ekki alveg búinn að negla leiðina en hún verður sennilega eitthvað í líkingu við þetta á kortinu. Pabbi mælti með þessari leið og maður er væntanlega mikið að hjóla á litlum sveitavegum. Það reyndar gæti líka verið að ég endi ferðina á því að koma hjólandi inn í Stokkhólm og taki svo bara lest til Västerås, en þetta eru nú bara aðeins misjafnar útfærslur og þarf ekki að ákveða strax. Fer kannski líka svolítið eftir því hvernig gengur á leiðinni. Aðalmálið er að kýla á þetta og bóka miðinn og setja sig í snöruna.
Annað sem maður þarf aðeins að pæla í er hvað maður ætlar að taka langan tíma í þetta. Sennilega er gott að sperra sig ekki of mikið fyrsta daginn en fara svo að lengja dagleiðirnar smám saman. Ég er að spá í að reikna með 9 dögum á hjólinu og það eru því 70 km dagleiðir að meðaltali. Ef aðstæður eru góðar og maður í stuði þá bara klárar maður fyrr og hefur fleiri daga til að slappa af.
Jákvæðni #11 Ég er búinn að eiga góð samskipti síðustu daga við fólk sem elskar mig eins og ég er
Ummæli