Dagbókin

Nú hef ég verið að einbeita mér að því síðustu daga að reyna að vera jákvæður. Ég hef líka verið að reyna að vera æðrulaus, eins og í bæninni góðu. Sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt. Láta ekki trufla mig hvað aðrir eru að gera. Ég verð nú bara að viðurkenna að þetta er aðeins að síast inn. Inn á milli dett ég þó í gamla neikvæða hugsunarmynstrið en er fljótari að losa mig úr því en ég var.

Þegar hugurinn fer að búa til eitthvað svartsýnisleikrit sem tengist skilnaðinum, peningamálum eða eitthvað annað, þá reyni ég að gerast áheyrandi/áhorfandi af þessum hugsunum og virða þær fyrir mér utanfrá. Minni mig á að ég breyti engu með því að hugsa hlutina fram og til baka og setja upp allar hugsanlegar sviðsmyndir í hausnum á mér.

Annars fór ég á fætur kl. 09.00 í morgun og skellti mér ræktina. Fór svo heim og fékk mér að éta og horfði á Silfrið, sem var reyndar óvenjulega leiðinlegt. Nú ætla ég að ganga frá eftir matinn, laga aðeins til og svo leggjast í lestur. Já og svo er það handboltinn. Lífið er yndislegt.

Jákvæðni #5 Ég seldi svolítið af myndum um jólin og græddi smá pening.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap