Dagbók
Akureyri, laugardagur 19.01.2019.
Veður: Hláka en fer ört kólnandi. Næðingur og þungbúið.
Vaknaði um kl. 08.00 og drakk morgunkaffi með mömmu (sem gisti hjá okkur í nótt). Skellti mér svo í ræktina og tók góða æfingu. Eftir það fór ég heim og át, tók gott bað, fór út og mokaði snjó og lagaði aðeins til.
Seinnipartinn kíktum við svo með mömmu á Listasafnið og Bláu könnuna. Eftir það brunaði mamma heim en við fórum í Hagkaup og keyptum djúpsteiktan kjúlla og nammi til að hafa yfir leiknum. Áfram Ísland!!!!
Jákvæðni #8 Ég þarf ekki lengur að láta erfiða einstaklinga eða slæmar aðstæður eyðileggja fyrir mér. Ef mig langar ekki að vera í samskiptum við einhvern eða gera einhverja hluti, þá segi ég bara nei.

Ummæli