Veikindi

Brynleifur kvartaði undan magapínu í morgun en ég rak hann að sjálfsögðu lóðbeint í skólann. Sagði við hann "ég hef ekki efni á að vera heima núna, það lagast hvort sem er þegar þú ert kominn í skólann!". Þvílík skilaboð til barns, mikið getur maður verið ljótur.

Ég endaði líka á því að þurfa að fara í skólann og sækja hann kl. 10.30 og við röltum saman heim. Hann getur reyndar étið en er eitthvað voðalega ólíkur sjálfum sér. Þessi drengur sem alltaf er svo kátur og hress er hálf sloj og líflaus. Kannski er hann kominn með Snjallsímaphilus Influenzae.

Ég reyni sjálfur að bera mig karlmannlega (þó ég eigi mikið bátt og konan líka í Reykjavík) og búinn að setja Juliette Gréco á fóninn og ætla að reyna að mála eitthvað víst ég er kominn í haglabyssufæri við málningardótið. Fyrst á dagsrká er vetrarmynd af Vindbelgjarfjalli séð frá Vogum.

Annars langar mig að lokum að deila þessari stórkostlegu grein um "Mógilsárdeiluna". Það eru ekki margir blaðamenn sem skrifa svona í dag.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap