Föstudagur
Afmæli í gær og ég saddur og sæll. Veður í dag ágætt, logn eins og alltaf. Snjór í fjöllum en autt á láglendi. Blautt malmik, dimmt yfir og maður er farinn að kveikja á lampanum á skirfborðinu þegar maður kemur í vinnuna, slökkva á honum eftir hádegið og kveikja svo aftur um þrjúleitið. Svo koma jólin.
Var að fara yfir nýmálaðar myndir í gær og reiknast til að ég sé kominn með 3 myndir sem ég er alveg sáttur við og 5-6 sem eru til vara. Þegar ég verð kominn með 10 sem ég verð ánægður með (og þá kannski 30 í heildina) fæ ég einhvern utan að komandi til að fara yfir þetta með mér.
Stefnum á að fara heim í sveit í seinnipartinn. Börnin hlakkar óskaplega til að komast til ömmu og afa. Ég ætla að taka með mér málningadótið og reyna að ná 2-3 góðum myndum um helgina. Fara svo í ræktina og kannski jarðböðin. Þetta verður fínt.

Ummæli