Veiðiferð, núvitund og ketofæða

Heilög morgunstund í pottinum.

Eitt og annað á daga mína drifið. Fór með strákunum í okkar árlegu Sperðlaveiðiferð. Í ár vorum við í frábærum bústað rétt hjá Selfossi og vorum með túnin hjá Ragnari og Hrafnhildi, vinum mínum sem ég kynntist í Noregi. Þau búa á Litla Ármóti og það ku vera ágætis gæsajörð. Við höfðum reyndar ekki heppnina með okkur og fórum bara í 1 morgunflug sem skilaði ekki nema 2 gæsum. Gott veður kom í veg fyrir að eitthvað af þessum fuglum sem létu sjá sig í túnunum hefðu áhuga á gerfigæsunum. Síðan náðum við einu kvöldflugi sem skilaði 2 gæsum og einum stokkara. Helgin var samt fín eins og alltaf og frábær matseðill, tondoori kjúlli, grískt lambalæri, gellur í rjómasósu og hin árlega þýska pylsu og beikonveisla.

Félagar á góðri stund- með Dóra og Stebba í gömlum tóftum að bíða eftir gæsum.

Ég var reyndar að glíma við erfið persónuleg mál þegar ég lagði af stað í ferðina og það truflaði mig aðeins. Ég náði samt á endanum að hrista þetta af mér með hjálp herra Eckhart Tolle. Fyrir ferðina var ég að rifja upp kynni mín af honum og þegar það helltist yfir mig einhver ömurleiki beitti ég ýmsum brögðum til að reyna að koma mér í núið og aftengja mig neikvæðum hugsunum. Var að verða frekar vonlítill en held að þetta hafi endanlega komið þegar ég náði morgunstund einn í pottinum með útsýni yfir Álftavatn og Ingólfsfjall, kaffi í bolla og píanóverk eftir Bach á fóninum.

Eftir að ég kom heim ákvað ég endanlega að gefa Ketofæði smá séns. Mikil fita og prótein og helst ekkert kolvetni (>10%). Búinn að éta mikið avocato, egg, smá beikon, reyktan silung og tómata. Síðan gerði ég prýðilega góðan hakkrétt með rósakáli, smá sýrðum rjóma, beikoni og bræddum osti. Alveg hreint skítafínt! Á morgun er ég svo að hugsa um að hafa bleikju eða lax í ofni.  Sumir hafa orðið hálf veikir af þessu fæði en ég finn ekki fyrir neinu ennþá. Kannski hjálpar að ég er orðinn annsi vanur að fasta milli klukkan átta á kvöldin og fram að hádegi næsta dag. Nú eru ekki nema 29 dagar eftir;)

Hafið það gott lömbin mín.....


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap