Rjúpa og aðsvif

Séð heim að Hólum sem eru undir Hólabyrðunni.

Fórum í Skagafjörðinn í gær í fjölskylduboð. Boðið byrjaði ekki fyrr en kl. 14.00 svo mér gafst tími til að stökkva aðeins upp í fjall. Það voru skyttur í skógræktinni þannig að ég þurfti að fara upp fyrir girðingu. Þar var eitthvað af slóðum frá því um morguninn en eins og venjulega í þessum aðstæðum voru þær allar farnar niður í skóg. Sá einhverja hópa niðri í skógrækt á leiðinni til baka en fékk ekkert í færi.

Fórum á Listasafnið í dag.
Þegar ég kom í veisluna eftir rjúpuna byrjaði ég mjög skynsamlega og ætlaði grimmt að halda mig við hollustu allskonar sem ég hafði tekið með mér. Át sviðasultu og harðfisk og drakk bara kaffi. En á endanum var mér farið að finnast þetta svo ömurlegt að ég ákvað að leyfa mér að fá mér af kökuhlaðborðinu. Það var hrikalega gott og ég var ekkert að velta mér meira upp úr því.

Í morgun ákvað ég svo að fara í crossfit tíma, sem er ekki frásögum færandi nema að ég varð að hætta eiginlega áður en hann byrjaði. Ef ég reis snöggt upp sá ég bara svart og leið næstum útaf. Þetta hefur eflaust verið blóðsykurfall. Það tekur víst líkamann 48 tíma að komast aftur í ketosu (að brenna fitu í stað kolvetna) og því hafði þetta sukk mitt sennilega eitthvað ruglað í kerfinu hjá mér og ég át engan morgunmat frekar en venjulega. Ég er svolítið hugsi eftir þetta en hef s.s. alveg haldið mig við keto- fæðið eftir þetta en veit ekki alveg hvað ég geri. Ég er nefnilega ánægður með árangurinn af þessu.

Búinn að vera eitthvað "light headed" eftir þetta í dag en við skelltum okkur samt í bæinn. Fórum í Listasafnið, ég hafði ekki skoðað það eftir breytingar. Þetta er í einu orði sagt alveg stórkostlegt. Framkvæmdir heppnuðust mjög vel, hönnun og öll vinn alveg frábær. Akureyri best alla daga .... húrra húrra húrra HÚRRA!!!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap