Nærumhverfið

Hlíðarfjall - Vatnslitir á pappír 14x18cm
Manni verður oft starsýnt upp í fjall þegar það tekur að snjóa. Alltaf fallegt þegar enn er snjólaust í byggð, þá fær maður svo miklar andstæður og þegar sólin skín úr suðaustri myndast alltaf þessir skemmtilegu djúpu skuggar á skálarnar. Held að sú syðri heiti Hlíðarskál og svo held ég að hinn skugginn falli á þar sem heitir Reithólar.

Ég geng til og frá vinnu á hverjum degi og göngustígurinn hlykkjast í gegnum klettaborgirnar fyrir ofan Háskólann og niður í Gerðin þar sem við búum. Það eru mikil gæði að geta gengið í vinnuna og ekki skemmir útsýnið fyrir. Það er nánast sama hvert maður lítur; Súlur, Hlíðarfjall, og svo rís Kalbakur í fjarska úr haffletinum.

Þegar ég var búinn með þessa mynd fattaði ég að ég hef málað næstum alveg eins mynd og þessa en hún var gerð eftir annari ljósmynd sem var tekin í febrúar 2017. Magnað hvernig maður festist oft í því að gera eitthvað svipað, jafnvel aftur og aftur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap