Byrjaður að hlaupa
Er aðeins byrjaður að hlaupa aftur. Ég er ekki alveg laus við hnémeiðslin en ég er að spökulera að láta það ekki stoppa mig og prufa að fara allavega þrisvar í viku og hafa þetta fjölbreytt. Fór 9,5 km síðasta laugadag og það gekk bara vonum framar. Hef ekki hlaupið svona langt í einhver ár held ég. Svo tók ég tempo-hlaup á mánudaginn og rólega 5 km í dag.
Ég hef verið alveg frá í öxlunum út af helvítis cross-fittinu (sem ég hafði svo ljómandi gaman af) en á samt eftir einhverja 7 eða 8 mánuði af kortinu. Held ég verði að reyna að nýta mér þetta eitthvað og gera bara það sem ég get.
Mataræðið hefur verið svona la la.... ekkert meira en það. Stundum gott en oft missi ég mig í einhverja óhollustu. Ég hef samt ekki verið að bæta neitt á mig að ráði, kannski vegna þess að ég fasta yfirleitt milli kl. 20.00 og 12.00. Fer í árlega veiðiferð í næstu viku þar leyfir maður sér að éta óhóflega á öllum tímum sólahrings. Eftir það er ég að spá í að taka 1 mánuð af ketogenic mataræði til að prufa hvernig það fer í mig. Mæli með að allir kíki á myndina Magic Pill á Netflix.
Að lokum þá er ég að ganga frá pöntuninni á hjólinu. Eins og kom fram hér einhverstaðar er það lendingin hjá mér að fá mér Trek 520 ferðahjól. Fæ það afhent í mars og er farinn að hlakka mikið til. Nú get ég farið að nördast og skoðað það sem mig vantar á hjólið; töskur, nýjan hnakk, ljós og ætli ég verði ekki að setja bretti.

Ummæli