Námskeið í aðlögunarstjórnun

Nýlega komin heim af 3 daga námskeiði í Reykjavík í Adaptive Nature Management með áherslu á veiðistofna. Mér hefur fundist orðið aðlögunarstjórnun lýsa þessu fyrirbæri best. Ferlið virkar þannig að hagsmunaaðilar eru kallaðir að borðinu í upphafi, gjarnan vegna einhvers vandamáls. T.d. vegna ágangs álfta og gæsa á tún bænda með tilheyrandi óánægju. Í því tilfelli þyrfti sennilega að hóa saman Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, fulltrúum bænda, Fuglavernd og Skotvís svo eitthvað sé nefnt.

Þessir aðilar skilgreina svo vandamálið og setja sér markmið með áætluninni. Þetta gæti verið að lágmarka árekstra við landbúnað (glaðari bændur) án þess að ganga um of á gæsastofnana. Til að ná markmiðinu eru svo settar aðgerðir, t.d. auknar veiðar, styrkir til bænda, skotveiðar utan veiðitímabils eða uppsetning friðarsvæða sem draga gæsir frá túnum og ökrum. Síðan þarf að setja upp vöktunaráætlun til að fylgjast með hvernig gengur að ná markmiðum og ekki síður gera aðgerðaráætlun sem tekur á því hvað skal gera þegar ákveðin tilvik koma upp, t.d. þegar stofn hrynur eða stækkar mikið. Ferlið er svo endurskoðað reglulega í ljósi útkomunnar (vöktun og rannsóknir). Þetta er því að vissu leiti lærdómsferli.

Það sem mér finnst skemmtilegt við þetta er að þetta krefst þess að vægi vísinda í ákvörðun um auðlindanýtingu minnkar á kostnað gilda (value based decisions). Eða öllu heldur, vísindin eru ekki látin stjórna því hvernig áætlunin er heldur styðja við áætlunina og verða kannski til þess að henni verður breytt á einhverjum tímapunkti. Auðlindastjórnun er fyrst og fremst mannlegt fyrirbæri og því er dauðadæmt að ætla einungis að fara eftir vísindalegum niðurstöðum og miða allt út frá þeim.

Þetta er gott tækifæri til að læra eitthvað nýtt og nú mun reyna á hvernig manni gengur að sætta ólíkar raddir og leiða fólk saman. Fólk sem er oft mjög ósammála og hefur jafnvel miklar tilfinningar í tengslum við efnið. Eins góð æfing í skipulagningu, verkefnastjórnun og ákvarðanatöku (ekki mín sterka hlið). Búið að benda mér á bók sem heitir Smart choices - a practical guide to making better decisions sem ég er að fara að lesa... hún fær hörku dóma og er skrifuð fyrir The average Joe. Jæja þetta er gott í bili.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap