En meiri ferðapælingar


Er búinn að vera að skoða mismunandi hjólaleiðir frá Kastrup og upp til Västerås. Það er snilld að nota Google frænda við þetta og hann gefur manni strax 3 mismunandi leiðir. Ein heitir Cycelspåret en hinar eru hluti af Sverigeleden sem eru sérvaldar hjólaleiðir sem liggja um alla Svíþjóð. Ég þekki ekki Cycelspåret en hinar síðartöldu voru víst valdar sérstaklega til að leiða mann í gegnum áhugaverða og fallega staði.

Eitt sem er að brjótast um í kollinum á mér, og það er hvort ég eigi að koma við hjá Pabba og Hafrúnu, og þá hvort ég eigi að taka lestina yfir eða hjóla í ferjuna sem fer frá Helsingör. Ef ég geri það þá er ég svo að hjóla aftur til baka og lengja leiðina nokkuð mikið. Á endanum reyni ég sennilega að finna mér upplýsingar um hvað er skemmtilegasta leiðin og læt það ráða. T.d. kippurinn frá Kastrup og til Helsingör, ef hann er áhugaverður tek ég á leið.

Var aðeins byrjaður á að kíkja á gistingu á leiðinni en hugsa að ég myndi frekar bara velja tjaldið. Meira frelsi og ódýrara.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap