Hjólapælingar til gamans
Ég seldi fjallahjólið mitt í vor. Þegar leið á sumarið mundi ég afhverju ég hafði ákveðið að selja aldrei aftur hjól (nema þá að kaupa nýtt í staðinn). Ég hafði nefnilega lent í nákvæmlega því sama þegar ég seldi götuhjólið mitt 2013, en var greinilega eitthvað farinn að gleyma því hvað það var mikið rugl. En til að slá á verstu fráhvörfin hef ég verið að notast við allt of lítinn konu-racer sem Sigga mágkona mín á. Hann heldur mér eitthvað við efnið en ég hef ákveðið að kaupa mér hjól aftur- sem fyrst. Ekki bara eitt hjól, ekki tvö, ekki þrjú.... heldur mörg. En það mun þó taka einhvern tíma.
Fyrir þá sem ekki hafa fengið hjólabakteríuna er kannski erfitt að skilja afhverju maður getur ekki bara keypt sér eitt hjól? Jú jú það er til fólk sem hefur gaman að því að spila mini golf og hefur ekki endilega löngun til að spila alvöru golf, en ef þú ætlar að spila GOLF, þá þarftu 14 kylfur, ekki bara eina. Þetta er svolítið svipað með hjólin. Þú notar t.d. ekki alveg eins hjól við að hjóla niður úr Strýtu og þú notar við að fara yfir Sprengisand. Þú sækir ekki barn á leikskólann á carbon-racer með smellupedölum og tekur ekki þátt í TT á ferðahjóli með bögglabera.
Ég ætla því að taka saman hér smá yfirlit yfir mismunandi hjól og hvað þau nýtast í. Þetta er kannski svona "if I had shit load of money" listi fyrir mig. Ég geri þetta bara fyrir sjálfan mig en kannski mun einhver hafa gaman að því að renna yfir þetta.
Fulldempað fjallahjól: Ég verð seint talinn vera geðveikur á hjóli og því þarf ég ekki meira "down hill" hjól en þetta. Þetta hjól er á 29" dekkjum og rúllar því vel yfir ójöfnur og gott í stóru grjóti. Gaffallinn gefur 130 mm dempun og hjólið er líka gott upp brekkur. Fyrst og fremst til að leika sér en hægt að nýta í styttri bakpokaferðir.
Dæmi um notkun: Jökulsárgljúfur, Dalfjall, Fálkafell-Kjarnaskógur. Brattir fjallvegir og dagsferðir.
Cyclocross: Tæknilega séð racer á örlítið breiðari dekkjum. Hægt að hafa á nöglum og því fínt æfingahjól fyrir veturinn og commute bike milli bæjarhluta.
Fyrir þá sem ekki hafa fengið hjólabakteríuna er kannski erfitt að skilja afhverju maður getur ekki bara keypt sér eitt hjól? Jú jú það er til fólk sem hefur gaman að því að spila mini golf og hefur ekki endilega löngun til að spila alvöru golf, en ef þú ætlar að spila GOLF, þá þarftu 14 kylfur, ekki bara eina. Þetta er svolítið svipað með hjólin. Þú notar t.d. ekki alveg eins hjól við að hjóla niður úr Strýtu og þú notar við að fara yfir Sprengisand. Þú sækir ekki barn á leikskólann á carbon-racer með smellupedölum og tekur ekki þátt í TT á ferðahjóli með bögglabera.
Ég ætla því að taka saman hér smá yfirlit yfir mismunandi hjól og hvað þau nýtast í. Þetta er kannski svona "if I had shit load of money" listi fyrir mig. Ég geri þetta bara fyrir sjálfan mig en kannski mun einhver hafa gaman að því að renna yfir þetta.
Dæmi um notkun: Jökulsárgljúfur, Dalfjall, Fálkafell-Kjarnaskógur. Brattir fjallvegir og dagsferðir.
Ferðahjól: Hef ekki mikið skoðað þessi ferðahjól en myndi leita að einhverju sem er þægilegt og gott að festa á töskur. Tjald, svefnpoki og annar búnaður.
Dæmi um notkun: Ferðast um Skandinavíu með allt á hjólinu.
Racer: Var lengi vel með blendnar tilfinningar varðandi götuhjól og fannst stundum hálf boring að sitja tímunum saman og spóla eins og hamstur í hjóli. En svo er eitthvað við þetta. Setja undir sig hausinn og þola sársaukann. Setja sér ný markmið og fara langt. Svo er ofboðslega gaman að vera í góðum hóp að hjóla.
Dæmi um notkun: Eyjafjarðarhringurinn, hjóla til Dalvíkur. Ýmsar keppnir og hjólatúrar í útlöndum.
Markmið 2019: Taka þátt í 4 gangna mótinu. Hjóla í Mývó. Hjóla í Hjaltadal, gista og hjóla til Akureyrar aftur. Hjóla upp í Skíðahótel á 25 mínútum.
Hardtail fjallahjól: Mýkri stígar, skógarslóðar og malarvegir. Lengri fjallaferðir en líka fínt innanbæjar.
Dæmi um notkun: Bláalónsþrautin, stígar í Kjarnaskógi
Cyclocross: Tæknilega séð racer á örlítið breiðari dekkjum. Hægt að hafa á nöglum og því fínt æfingahjól fyrir veturinn og commute bike milli bæjarhluta.
Rafhjól: Ekki hægt að enda þetta öðruvísi en að hafa eitt rafhjól með. Þegar maður lifir bíllausum lífsstíl er gott að hafa rafhjól til taks. Hafa góða kerru og nagladekk tiltæk. Ég myndi nota það til að skjótast innanbæjar, fara og versla fyrir jólin og í Byko og önnur erindi í jaðri bæjarins. Einnig á fundi og aðrar samkomur þar sem maður vill vera í fínna taui og ekki sveittur.
Jæja þá er ég búinn að rommsa þessu út úr mér og hafði gaman af. Ég valdi bara gæðahjól og reiknast til að þau kosti öll saman eitthvað í kringum 2 milljónir. Það finnst mörgum mikið en þá má benda á að rekstrarkostnaður á nýjum 3,5 milljón króna bíl sem keyrður er 15.000 km á ári er um 1,3 milljónir.
Kveðja, Bjarni
Ummæli
Hefurðu einhvern tíma furða ef það er hægt að hakka hlutina eins og tölvusnápur gera það í bíóunum.
🤔🤔
Já mögulegt !!! 😁😁😁
Hacking getur auðveldlega verið gert með því að gróðursetja tölvuveira eða spyware (allt eftir því hvað tölvusnápur hyggst gera) í markvissum tækinu.🤐🤐
Við hjá HACK GEEKS gefa þér bestu hakkþjónustu þar sem alltaf er
Við skiljum útgáfur af svindlarum um allt netið og það er þess vegna sem við gefum þér traustan sönnun á þjónustu okkar.👌👌
Við höfum fengið toppur tölvusnápur í hackerone.com sem er alltaf tilbúinn til að hakk fyrir þig hvenær sem er, hvar sem er, hvaða tæki, samtök, sambandsskrifstofur, háskóli, háskóli sem þú hugsar bara um það.
Viltu:
* Til að Hack, Clone eða fylgjast með síma? 📲
* Til að hreinsa, eyða eða breyta skrá í fyrirtæki, stofnun eða í sambandsskrifstofu? 📖
* Til að sækja minni BitCoin? 💰
* Til að hakka í tölvupósti eða hvaða félagslega miðilreikning? 💞
* Til að flytja fé án þess að hafa fundist? 💴💵💷
* Til að auka lánshæfismat þitt? 🔝🔝
* Til að hakka kredit / debetkort? 💰💳
Allt þetta er það sem við getum gert fyrir þig.
Við erum descrete og mun ekki afhjúpa þjónustuna okkar til þín fyrir neinn.
Hafa samband:
thehackgeeks@gmail.com
Við hlökkum til að reiðhestur fyrir þig