Bíllausi lífstíllinn
Við erum búin að vera bíllaus síðan í byrjun sumars eða í vor... man ekki alveg nákvæmlega tímasetninguna. Þetta eru sennilega samtals á bilinu 3 til 4 mánuðir. Ef frá eru talin einhver skipti sem okkur hefur verið lánað ökutæki (og það fyndna við það er að við höfum ekki beðið um það af fyrra bragði), þá höfum við lítið eða ekkert saknað þess að vera ekki á bíl.
Með afborgun af bílaláni og rekstrarkostnaði á bílnum munum við sjálfsagt spara í kringum 2 milljónir á ári við að losa okkur við þennan stálhlunk sem veitti okkur (allavega ekki mér) enga sérstaka ánægju. Fyrir mér var það þvílík frelsistilfinning að losna við þennan bíl og geta hætt að hafa áhyggjur af því að hann væri að fara að bila, það þyrfti að fara að þrífa hann eða koma honum í skoðun. Bless bless Ford Galaxy you will not be missed.
Að lokum má líka nefna hvað maður getur étið mikið meira án þess að það setjist á mann......
Ummæli