prósar

Ég er búinn að vera að brasa við þessa flugferð mína hérna fyrir neðan. Ég hefði kannski frekar átt að fullvinna hana bara á Word og setja hana svo hérna inn. Í staðinn er ég búinn að vera að fikta í henni fram og aftur. Setja inn karaktera, taka þá út, lengja, stytta og fikta. Þetta er kannski eins og með að mála, maður verður að kunna að hætta.

Annars verður þetta oft organískast þegar maður bara lætur vitleysuna vaða á blaðið og hugsar ekkert of mikið um þetta. Skrifar svo hratt að manni blæði.

Mig langar mikið til að skrifa prósa og gefa út með myndum sem ég mála við hvern prósa fyrir sig. Það verður einhverntíman í ellinni. Sú pæling fittar inn í garð með grenitré, jólasnjó og kofa með kerti i glugga.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap