..........
síðan ég bloggaði síðast hef ég:
mikið verið á instagram
hætt að vera mikið á instagram
pælt í þörungum
farið til Berlínar
pælt í lífinu og tilverunni
pælt í hvað ég eigi að fara að vinna við í framtíðinni
hætt að hugsa um pólitík
byrjað aftur að hugsa um pólitík
spáð í að flýja land
hugsað um náttúruvernd
reynt að mála fyrir listsýningu sem átti að vera í júní
lent í sköpunarkrísu
panikkað
sagt mig frá listasýningunni
fengið samviskubit og verið miður mín
hugsað að stundum verði ég að gera það sem er best fyrir mig
velt því fyrir mér hvenær ég byrji að mála aftur
hugsað um hvort ég eigi einhverntíman eftir að skrifa eitthvað
klárað úr kaffibolla
............
Ummæli