Hitt og þetta

Hér er ég mættur aftur hálf aumingjalegur eftir mislukkaða tilraun til að yfirfæra bloggið mitt á eitthvað hrognamál. Ég veit ekki hvað ég var að hugsa með þetta allt saman. Ég veit reyndar ekki hvað ég er að hugsa um að gera við þetta blogg eftir allt saman. Það sakar svo sem ekki að hafa helstu upplýsingar á ensku. Ég er samt eiginlega farinn að hallast að því að ég haldi þessu bloggi bara fyrir mitt gamla skrifpúlt þar sem ég læt móðann mása og reyni frekar að að finna annan vettvang til að selja verkin mín. Sennilega er FB bara betra í það.

Ég hef verið í hálgerðri lægð, jafnvel pásu í myndlistinni. Í gærkvöldi spýtti ég samt í lófana, tók einhvern afgangspappír og sleppti aðeins fram af mér beislinu. Hemmi í Vogum- véfréttin nýja- er fyrir ofan að bera tíðindi í hús með sláturkeppi í mal sínum. Fyrir neðan eru snæviþakin fjöll í Eyjarfirði og bátar á Dalvík. Sú mynd var gerð án teikningar.

Ég veit ekki alveg hvað ég geri fyrir sýninguna mína á Dalvík- kannski eitthvað aðeins flippaðra.




Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap