Egóferð í borg
Þá er maður kominn heim aftur eftir þetta egóflipp í Reykjavík sem gekk bara býsna vel. Opnunin var frábær og þangað kom mikið af fólki sem mér þótti vænt um að sjá. Ég seldi líka ágætlega af þessum myndum og kem til með að birta sýninguna hér á blogginu á morgun. Þá getur fólk kíkt á þær og jafnvel keypt ef það vantar eitthvað krúttlegt í jólagjöf eða á vegginn í stofunni.
Svo heldur sköpunin áfram í kvöld þegar ég kem heim úr vinnu. Það liggja fyrir einhverjar myndir sem eiga að verða jólagjafir. Síðan eru að koma jólkort úr prentun. Það er nóg að gera.
Já og svo sagði ég upp vinnunni í dag. Meira um það síðar
Kveðja, Bjarni

Ummæli