Oban bátar

Eins og þeir sem heimsækja síðuna mína reglulega vita, þá hef ég rosalega gaman að því að mála báta. Einhverntíman heyrði ég lærða listamenn tala niðrandi um svokallaða bátamálara, eins og það sé ekk nógu fínt að mála báta? Þeir geta troðið árabát upp í rassgatið á sér.

Gallinn við þessa áráttu mína er hinsvegar sá að ég hef takmarkaðan efnivið hérna í Mývatnssveit og því leita ég stundum bara á netinu. Það er samt ekkert gaman að mála eftir annara manna myndum. Í kvöld gróf ég samt upp myndir sem ég tók sjálfur í vinnuferð í Skotlandi um árið. Hér er tilraun eitt í einum lit. Ekki alslæm en þarf smá lagfæringu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap