Meira doodle

Baráttan heldur áfram og ég reyni að safna upp í sýninguna sem verður í Reykjavík í desember. Það skiptast á skin og skúrir og maður reynir að finna sér eitthvað til að mála með misjöfnum árangri.

Þessi Zetor var skemmtilegur en ég vann hann aðeins of mikið. Ég ætla að gera aðra og laga þá aðeins til grillið og gera smá aðrar breytingar.

Prufaði aftur blessaða fossana en tókst svo sem ekkert betur til en í fyrra skiptið. Þetta er samt skemmtilegt viðfangsefni. Sá óskaplega fallega mynd eftir Didda Hall af Hrafnabjargarfossum niður í dölum fyrir nokkru síðan. Langar að skoða hana aftur og stúdera aðeins.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap