Í víðara samhengi
Stökk framúr í gærkvöldi og fiktaði eitthvað meira í forgrunninum og lagaði skugga á skemmunni. Það varð svo sem ekkert alveg til að bjarga myndinni en hún skánaði. Það er oft gott að "sofa" á þessu og skoða þær daginn eftir. Næst þarf ég að einfalda þetta eitthvað fyrir mér áður en ég byrja. Einfalt = gott.
Annars er það sem hefur heillað mig síðustu daga (en kom ekki alveg fram á þessari mynd) eru sterkir grænir litir og mikið af gulum fíflabreiðum. Síðan hefur verið alveg óskaplega fallega blár himinn- of kyrrlátur fyrir málverk.
Ummæli