Hjól

Frá Námaskarði fyrir nokkrum dögum
Ég er algerlega orðlaus yfir þessu hjóli sem ég keypti mér í fyrrahaust. Þar sem flestir slóðar eru ennþá blautir eða undir snjó hefur það gert það að verkum að maður hefur þurft að vera kreatívur við að finna leiðir. Í stuttu máli fer maður bara beint af augum. Það er helst að hraun stoppi mann.

Ég er að fara leiðir og gera hluti sem ég hefði aldrei látið mig dreyma um í villtustu draumum fyrir nokkru síðan. Þetta kemur svo skemmtilega á óvart þar sem ég hélt að ég væri að kaupa mér eitthvað verkfæri sem ég hefði ekkert með að gera.

Áðan hjólaði ég eftir hitaveitustokknum upp að hesthúsum, þaðan upp í Kringlu og svo beint upp brekkuna þar og upp á topp. Hjólaði svo þvers og kruss út um allt og endaði á því að koma hlíðina fyrir ofan þorpið og fara niður að golfvelli. Snilld

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap