Gamlir tímar


Ég er búinn að vera að gera myndir eftir einu ljósmyndinni sem til er svo vitað sé af gamla Vagnbrekkubænum fyrir 1947. Þ.e. frá þeim tíma er suður stafninn var steyptur en vesturhlutinn hlaðinn úr torfi og grjóti. Ljósmyndin er í raun ekki góð og það sést bara hluti af húsinu svo ég hef þurft að beita ímyndunaraflinu.

Ég er búinn með 2 myndir sem mætti segja að séu nokkuð hefðbundnar og ég ætla að gefa. Það er bara af bænum sjálfum en ekki af umhverfinu. Síðan gerði ég þessa frjálslegu skissu út í loftið og bætti við bát og vatni. Já og skilti sem var örugglega ekki á þessum tíma.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap