Hreyfing

Er að reyna að byrja að hreyfa mig aftur. Það er meira en að segja það. Hluti af skýringunni er að sjálfsögðu fjölskyldan og aðrar skyldur. Frítími minnkar og upp á síðkastið hefur hann farið í annað en sprikl. Því er ég að reyna að troða inn einhverju æfingaprógrammi sem ég get gert til að byrja með 3x í viku. Það þarf að vera einfalt, fljótlegt, ekki of leiðinlegt og taka á allan líkamann. Hér er það sem ég er að byrja á núna

Stigaganga með handlóð (eins þungt og maður meikar)
Niðurtog (þröngt og vítt til skiptis)
Afturstig og framstig til skiptis
Armbeygjum með hliðarplanka (handlóðum þegar getur)
Hopp upp á bekk 10-20 x (eins langt frá og hægt)
Clean með axlapressu m/handl.
Magaæfingar (blandað)

Síðan hvílir maður í 2-3 mínútur og svo byrjað aftur. Endurtekið 3x. Þetta tekur rétt um 24 mínútur, púlsinn fer vel upp og ég finn fyrir þreytu í efripartinum. Nú er bara að gera þetta 3 í viku fram að páskum og reyna að hjóla eitthvað með þessu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap