|
Dale Laitinen - Secret Falls, Yosemite-Watercolor-22 x 30 |
Einn af þeim sem ég hef svolítið verið að skoða á netinu er Dale Laitinen. Það sem einkennir myndir Dale eru að hann málar í lögum þar sem neðri lög fá að skína í gegn, ef svo má segja. Hann flokkar sig líka sem "transparent" vatnslitamálara. Hann leggur fyrst grunn (wash) til að fá lit og ljóma í myndina en vinnur svo skugga og díteila ofan á það. Ásgrímur vann mikið svona og er það kallað "wet on dry".
Landslagsmyndir Dale eru stundum dálítið teikninmyndalegar en það er eitthvað við þær. Bestur er hann sennilega í grjóti og forgrunnum þar sem hann vinnur í mörgum lögum. Þessi fossamynd gefur ágætis hugmynd um hvað hann stendur fyrir.
Ummæli