Netið
Margir heimspekingar velta því nú fyrir sér hvernig við hugsum um náttúruna og hvort að sú hugsun sé þess valdandi að hvorki gengur né rekur í að vernda hana- eða þannig. Má þar nefna tilhneygingu okkar til að skilja okkur frá henni í umræðunni, setja hana á stall og dáðst að henni úr fjarlægð. Við erum ekki lengur hluti af henni.
Maður að nafni Timothy Morton hefur samið um þetta nokkrar bækur. Ég hef ekki lesið þær en aðeins kynnt mér texta á netinu. Hann hefur m.a. velt því fyrir sér hvort listræn túlkun á náttúrunni geti fært okkur nær henni á einhvern hátt eða opnað nýjar dyr. Hann hefur einnig verið með kenningar um "netið", sem við öll erum hluti af.
Ég á erfitt með að lesa íslenska heimspekitexta, hvað þá enska. Oft finnst mér gott að þýða þetta staf fyrir staf og velta því fyrir mér. Þýddi smá úr einni bók frá honum. Stuttan texta um netið.
Þetta virðist kannski alveg sjálfgefið en er það ekki.

Vistfræðilega hugsun er einnig að finna í hinni yndislegu straðreynd um "netið". Allir lifandi hlutir eru netið, einnig allir dauðir hlutir, öll búsvæði sem samanstanda af lifandi og dauðum hlutum- eru netið. Við vitum meira en nokkru sinni fyrr hvernig öll lífsform hafa mótað jörðina (hugsið um olíu, um súrefni- fyrstu náttúruhamfarirnar sem ullu loftslagbreytingum). Við keyrum um og brennum í leiðinni krömdum risaeðlum. Járn er að mestu hliðarafurð úr efnaskiptum baktería. Líka súrefni. Fjöll geta verið úr skeljum og steingerðum bakteríum. Dauðinn og netið fara einnig saman í öðrum skilningi, vegna þess að náttúruval felur í sér útdauða.
Þetta virðist kannski alveg sjálfgefið en er það ekki.
Ummæli