Að tala við fólk eða ekki

Sit á Akureyri og bíð eftir flugi. Það hríðar eitthvað og blæs og ég er búinn að vera að góna út um gluggann og spá í hvort ég eigi að reyna að flýta fluginu. Samt veit ég að það borgar sig ekkert að vera að stressa sig of mikið á þessu. Þetta er eins og að hlaupa milli biðraða í Bónus. Þegar þú hleypur yfir í röðina sem er styttri þá þarf afgreiðslumaðurinn allt í einu að fara með vöru inn í búð og leita að strikamerkinu og verðinu. Þú tapar á þessu. Ég veit ekkert hvernig veðrið verður á eftir.

Ég reyndi samt eitthvað að hringja og athuga með breytingar á miða. Fékk ekki að tala við neinn. Bara hlusta á símsvara og ýta á 1, 2 eða 3, eftir atvikum. Í dag er svo dýrt að hafa fólk í vinnu og það er svo mikið meira að gera en árið 1995 að engin má tala í síma lengur. Veldu einn fyrir að hlusta á símsvara sem bendir þér á að skoða bara sjálfur á netinu hvernig þetta virkar.

Fer til San Francisco seinnipartinn á morgun að hitta góða vini. Spila smá golf og keyra um Napa-dalinn. Eflaust mjög "þrúgandi" (ha ha fyndinn ég). Tek með skissubækur og blýant en sleppti málningunni í þetta skiptið. Ég veit hvort eð er að ég á ekki eftir að gefa mér tíma til að gera einhverjar krúsídúllur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap