Sýning um næstu helgi
Málaði ekki eina einustu mynd um helgina, sem er óvanalegt. Kannski er líka ágætt stundum að reyna að temja sér smá aga og biðlund. Hættir of oft til að hefjast bara handa og vita ekkert útí hvað ég er að fara. Ég hef ekki ennþá getað tamið mér þá list að sjá verkið fyrir mér í hausnum áður en ég byrja. Kannski er ég bara ekki þannig. Eða kannski kemur það bara með tímanum.
Ég málaði reyndar einn himinn um helgina- alveg dæmalaust fallegan. Hann bíður heima eftir því að fá félagsskap Bljáfjalls, Neslanda og hauslitadýrðar. Fyrirmyndin er mynd frá Agli.
Stefni að því að halda málverkasýningu sunnudaginn 12. október í Birkihrauni 9. Bara heima í stofu, ekkert vesen. Kaffi á könnunni og allt á að seljast.
Kveðja, Bjarni

Ummæli