Bátur

Ónefndur bátur úr gamalli skipabók.
-Málað á Steinhólum 2014-

Þegar ég mála hengi ég alltaf myndirnar upp í kringum mig í vinnuherberginu. Þegar allt er orðið fullt ríf ég þær allar niður, fer yfir þær og ramma kannski einhverja inn ef mér líst svo á. Svo byrjar maður upp á nýtt. Nýtt upphaf, nýjar hugmyndir.

Þrjár myndir hef ég samt alltaf skilið eftir hangandi á veggnum og ekki tímt að taka niður, einhverra hluta vegna. Samt ekki heldur viljað ramma þær inn. Gamall Volvo og svo blýantsteikning af manni að beisla hest.

Mér er líka farið að þykja vænt um þessa mynd hér fyrir ofan. Ég man að ég var aldrei ánægður með hana þegar ég gerði hana. Þurfti að laga hana til með penna í lokin. Hún er samt að verða hluti af vinnuaðstöðunni minni. Alltaf á sínum stað, vinstra megin við málningardótið. Kannski ramma ég hana bara inn fyrir sjálfan mig við tækifæri.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap