Alvaro

Alvaro Castagnet - Stavanger Norway sketch 2014. From Alvaro´s FB page

Kannski málar maður í kvöld. Skissur eins og þessi hérna fyrir ofan kveikja alltaf í manni löngun til að mála. Einfaldleikinn í fyrirrúmi, lítill myndflötur, stór pensill og unnið hratt. Þeir sem hafa unnið með vatnsliti átta sig á því hvað þarf mikla tækni og kunnáttu til að ná fram þessum áhrifum. Birtan á haffletinum sem dæmi, glitrandi yfirborðið. Mistur í lofti, sjávarangan og smá reykjarslæða frá verksmiðju. Lykt frá bakaríi og úr kaffibrennslu fylgir svo í kaupætið, gefi maður sig alveg að efninu.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap